Samantekt um þingmál

Skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða

631. mál á 145. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að auka svigrúm lífeyrissjóða til fjárfestinga.

Helstu breytingar og nýjungar

Lífeyrissjóðir fá aukið svigrúm til fjárfestinga m.a. í skráðum og óskráðum bréfum og sértryggðum skuldabréfum og mega taka þátt í viðskiptum á lánamarkaði með verðbréf. Þeim eru einnig settar strangari reglur um viðskipti, í samræmi við reglur Evrópusambandsins og svokölluð "varfærnisregla" eða "skynsemisregla" er innleidd í lögin.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum  um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki kostnað í för með sér fyrir ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum sem styrkja meginmarkmið frumvarpsins.

Aðrar upplýsingar

Lög um starfstengda eftirlaunasjóði nr.  78/2007
Tlskipun Evrópuþingsins og ráðsins um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri 2003/41/EB.


Síðast breytt 12.10.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.